Stillanlegur spennugjafi
Power supply
Hægt að stilla DC spennu frá 0V til 30V og straum frá 2mA til 3A. Nýtti hýsinguna af biluðum aflgjafa ásamt öryggi og rafmagnstengi.
Línueltir
Line follower
Lokaverkefni í Tölvuteikningu og framsetningu við Háskóla Íslands. Verkefnið gekk út á að búa til tiltölulega flókið "assembly". Gera átti smíðateikningar af íhlutum ásamt sprengimynd og ísómetrískum myndum. Allt gert í Autocad.
Arcade
Arcade Table
Hægt að spila alls kyns tölvuleiki. T.d. NES, SNES, Nintendo 64, MAME, Playstation 1, Dreamcast, o.fl.
Stýrismaskína
Steering machine assembly
Sá um að hanna og setja saman nýja stýrismaskínu fyrir formúlubíl sem keppti við aðra háskóla á Silverstone brautinni í Bretlandi sumarið 2014. Fengum verðlaun fyrir að vera stigahæstu nýliðarnir.
Hönnunaforsendur: Rack and pinion
Geta fært pinion tannhjól til eða frá rack tannhjólum til þess að ná fullkomnu "meshing" af gírum.
Þrívíddarprentari
3D Printer
Þrívíddarprentari sem ég setti saman úr kit-i. Bjó til kassa (e. enclosure) til þess að halda hita jöfnum. Heitt umhverfi hjálpar við prentun. Gerði fleiri endurbætur á prentaranum t.d. festing fyrir filament spólu, filter til þess að hreinsa filament, plexigler í hurð, fan shroud o.fl. Fyrsta mynd fengin að láni af netinu vegna þess að ég fann ekki betri mynd af mínum prentara. Slóð á mynd.
Meistaraverkefni
Master's project
Verkefnið gekk út að besta framleiðsluparametra fyrir (e. investment casting) eða (e. lost wax casting). Ég uppfærði 3D prentara með hitafleti (e. heated bed platform) ásamt öðrum uppbótum. Stillingar og parametrar fyrir 3D prentun vaxhluta voru bestaðir. Vaxhlutirnir voru húðaðir með keramik og sandi. Eftir að vaxið var brætt úr skelinni þá var hægt að hella fljótandi málm í skelina og framleiða flókna en tiltölulega nákvæma íhluti.
Sound of Vision
Vann að framleiðsluferli fyrir gerð gervieyra. Vann að verkferlum og framleiðslu á eyrum sem notuð voru í rannsóknum. Hjálpaði samstarfsfólki að leysa ýmis vandamál sem voru meðal annars tengd vélaverkfræðisviði.
BB-8
Vélmenni
Lokaverkefni í Framleiðsluferli og Tölvustýrðum vélbúnaði í HÍ
Vorum 4 saman í hóp. Teiknuðum alla íhluti í Inventor. Reyndum fyrst að búa til "paper mache" kúlu en það misheppnaðist. Þá fundum við plastkúlu af gömlum ljósastaur. Fjarlægðum brúnina á stóru kúlunni og þrívíddarprentuðum lok á hana. Notuðum plast salatskál fyrir hausinn vegna þyngdartakmarka.
Myndband
Þrívíddarprentari
3D Printer
Lokaverkefni í Örtölvu- og mælitækni í HÍ
Verkefni:
-Hanna og smíða rafrás sem verður hluti af
heildarlausninni.
-Útbúa rafeindabúnað sem skynjar umhverfið og hefur áhrif á umhverfið útfrá því sem
hann skynjaði
Vorum 3 saman í hóp. Teiknuðum alla íhluti í Inventor. Stálnaust beygði fyrir okkur rammann og VHE fræsti
hina íhlutina úr áli og plasti.
Bjuggum til rafrásir til þess að keyra 4 stepper mótora, skynja endastopp með rofum og notuðum
hitanema amplifier til þess að skynja hitastig við stútinn (e. extruder nozzle).
Þyrilsnælda
Fidget Spinner USB
Lokaverkefni í Plastic Design við DTU
Vorum 4 saman í hóp. Ég sá um hönnun og úfærslu á hlutunum. Teiknaði allt í Inventor ásamt því að gera hermanir fyrir sprautuformun (e. injection moulding).
Mapim - GPS
Map Image Marker - Geotagged photos
Lokaverkefni í Vefforritun við HÍ
Prófaðu vefinn hér: Mapim.
Verkefni:
Skila skal
útfærslu á vef sem hefur útfærða bakenda- og framendavirkni. Nota skal þáhluti sem útfærðir hafa verið í
öðrum verkefnum saman. Einnig skal skrifa stutta skýrslu um verkefnið og skila með.
Vorum 4 saman í hóp og bjuggum til vef þar sem hægt er að hlaða inn ljósmyndum sem eru "geotagged". Ef kveikt er á staðsetningu/GPS í snjallsíma er hægt að stilla myndavélaappið þannig að það skrái GPS-hnit í EXIF ljósmyndar.
Spjaldtölvuhaldari
Tablet holder
Lokaverkefni í Metallurgy, design and manufacturing of cast components við DTU
Verkefnið gekk út á að hanna og steypa síðan viðkomandi hlut úr áli og nota a.m.k. einn "core".
Vorum 5 saman í hóp. Ég hannaði haldarann í Inventor ásamt öllum hinum hlutunum sem voru þrívíddarprentaðir, t.d. Corebox sem sést á gif vera tekinn í sundur, gating system o.s.frv.
Húsbíll
Camper van
Hjálpaði pabba sumarið 2018 að breyta Mercedes Benz Sprinter í húsbíl. Ég hjálpaði honum við ýmis verkefni. Ég fékk að sjá að mestu um rakerfið. Í bílnum er queen size rúm, vaskur, 12V vatnsdæla, 12V ísskápur, gasbrennarar, gashitari, gasnemar, sólarsellur, sjónvarp, sjónvarpsloftnet, tveir 12V 120Ah gelgeymar o.fl.
Ég skipulagði rafkerfið með því að teikna bílinn gróflega á pappa og stinga marglitum vírum milli tengipunkta, öryggisboxsins, rafhlaðna o.s.frv.
Þrif-vélmenni
Robotics Project
Lokaverkefni í Robotics kúrs í DTU.
Vorum 2 saman í hóp. Verkefnalýsing:
The purpose of this project is to study a real robot and apply the knowledge gained from
this course to solve real life problems with the Alto Robot. The Alto Robot is a cleaning
robot sold by the Ramsta Robotics Company. The robot uses a water jet to clean livestock
buildings and containers.
Forrituðum PID stýringu, fundum hreyfijöfnur, reiknuðum; hraða, hröðun, vægi, hverfitregðu og fleiri stærðir.
Veltistöng
Anti-roll bar
Lokaverkefni í Tölvuvæddri greiningu.
Vorum 2 saman í hóp. Verkefnið snerist út á að greina hluti með hjálp Ansys. Við greindum hlut sem nota átti í formúlubíl Team Spark. Með gefið efni átti að finna minnstu leyfilegu veggþykkt á veltistönginni ásamt því að finna hvar mesta álag á sér stað.